Sigurjón Þórðarson (andsvar):
Virðulegi forseti. Í framhaldi af ræðu hæstv. ráðherra þar sem hún kom að því að það lægi beint fyrir að banna rjúpnaveiði langar mig að spyrja hvort núverandi lágmark stofnsins sé marktækt lægra en fyrri lágmörk stofnsins.
Í öðru lagi spyr ég hvers vegna ráðuneyti umhverfismála svarar ekki erindum sem beint er til þess.