Stofnun sædýrasafns

Mánudaginn 10. nóvember 2003, kl. 18:50:03 (1444)

2003-11-10 18:50:03# 130. lþ. 23.11 fundur 277. mál: #A sædýrasafn á höfuðborgarsvæðinu# þál., JGunn (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 23. fundur, 130. lþ.

[18:50]

Jón Gunnarsson (andsvar):

Herra forseti. Ég tek undir það með hv. flm., Láru Margréti Ragnarsdóttur, að þessu máli verði hraðað, það verði skoðað, en jafnframt hvika ég ekkert frá þeirri skoðun minni að það þarf að breyta tillögunni í þá veru að hér séum við að tala um Ísland allt en ekki höfuðborgarsvæðið eitt og sér.