Félagsmálaráðherra (Árni Magnússon):
Hæstv. forseti. Ég get alveg svarað því einu sinni enn. Það hefur verið gert upp við þennan fyrrv. framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu og úr því að það fer svona í taugarnar á hv. þm. Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur að ég komi hér tiltölulega vel undirbúinn til starfa á Alþingi ætla ég ekki að biðjast afsökunar á því.