Umræða um dagskrármál

Þriðjudaginn 18. nóvember 2003, kl. 19:33:18 (1869)

2003-11-18 19:33:18# 130. lþ. 29.96 fundur 162#B umræða um dagskrármál# (um fundarstjórn), MÁ
[prenta uppsett í dálka] 29. fundur, 130. lþ.

[19:33]

Mörður Árnason:

Virðulegi forseti. Mig minnir að því hafi verið lýst hér áðan úr forsetastól að 8. og 9. mál væru tekin saman til umræðu. Og við höfum sem sé verið að fjalla um þau hér bæði í senn. Ef það er misskilningur er hann leiðréttur. Þetta er smávægilegt.