Flm. (Drífa Hjartardóttir) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég vil bara þakka hv. þm. Guðjóni A. Kristjánssyni aftur fyrir hans jákvæðu orð hér. Ég tek undir með honum að það er styrkur fyrir íslenska þjóð að halda landinu í byggð, það eru mikil verðmæti fólgin í því, og sauðfjárbændur eru sannarlega hinn sterki hlekkur í hinum dreifðu byggðum landsins.