Félagsmálaráðherra (Árni Magnússon) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég tel að á þeim dögum sem eftir eru af þessu þingi, áður en við förum heim í jólafrí, gefist nægur tími til þess að fjalla um þetta mál. Hvað varðar aðra spurningu hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur þá hefur engin önnur ákvörðun verið tekin en sú að leggja fram það frv. sem hún gerði hér að umtalsefni.