Greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna fiskvinnslufólks

Laugardaginn 06. desember 2003, kl. 10:23:51 (2852)

2003-12-06 10:23:51# 130. lþ. 44.2 fundur 420. mál: #A greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna fiskvinnslufólks# (tímabundin vinnslustöðvun o.fl.) frv. 136/2003, félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 130. lþ.

[10:23]

Félagsmálaráðherra (Árni Magnússon) (andsvar):

Hæstv. forseti. Hv. þm. gerir sérstaklega að umtalsefni reynsluleysi ráðherra. Nú hef ég ekki setið lengi á Alþingi en hef þó fylgst með störfum þess þannig að ég veit að oft hafa stærri mál fengið skemmri meðferð á hinu háa Alþingi en hér um ræðir.