Greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna fiskvinnslufólks

Laugardaginn 06. desember 2003, kl. 10:25:07 (2854)

2003-12-06 10:25:07# 130. lþ. 44.2 fundur 420. mál: #A greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna fiskvinnslufólks# (tímabundin vinnslustöðvun o.fl.) frv. 136/2003, félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 130. lþ.

[10:25]

Félagsmálaráðherra (Árni Magnússon) (andsvar):

Hæstv. forseti. Því er til að svara að leitað var eftir samráði við verkalýðshreyfinguna. Hún hafnaði því samráði en nokkurt samráð hefur verið haft við forsvarsmenn samtaka fiskvinnslustöðva.