Félagsmálaráðherra (Árni Magnússon) (andsvar):
Hæstv. forseti. Eins og ítrekað hefur komið fram í máli mínu í dag þá tel ég að með þeim breytingum sem hér er lagt til að verði gerðar á þessum lögum sé ekki verið að kollvarpa því kerfi sem í gildi hefur verið og að ekki sé um grundvallarbreytingar að ræða.