Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Framlagning frv. er á mína ábyrgð. Taflan er unnin í mínu ráðuneyti og Öryrkjabandalaginu var kunnugt um það að ég mundi leggja frv. svona fram. Ég tilkynnti þeim það að sjálfsögðu. En hins vegar láðist mér áðan í framsöguræðu minni að biðja um að frv. yrði vísað til heilbr.- og trn. og ég vona að það brjóti ekki í bága við þingsköp að gera það hér með.