Guðjón Ólafur Jónsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Það er auðvitað sérstakt ánægjuefni eins og ég gat um áðan að hv. þm. hafi svona mikinn áhuga á félagsskap ungra framsóknarmanna í sínu kjördæmi. Ég veit að vísu ekki hvort hv. þm. uppfyllir þau aldursmörk sem eru í þeim félagsskap en hann er alltjent velkominn í Framsóknarfélag Skagafjarðar ef ekki vill betur.