Gunnar Örlygsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Í þessu fræga frv. eru sérákvæði bæði um forseta Íslands og forsrh., eins og ég get skilið það. Ég er ekki að biðja hv. þm. Bjarna Benediktsson um að fara í mikla vinnu þegar ég nefni til sögunnar þá beiðni mína að þessi tiltekni liður um forsrh. verði reiknaður sérstaklega. Ég ítreka enn og aftur beiðni mína þess efnis.