Eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara

Laugardaginn 13. desember 2003, kl. 14:25:44 (3420)

2003-12-13 14:25:44# 130. lþ. 50.2 fundur 447. mál: #A eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara# frv. 141/2003, PM (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 130. lþ.

[14:25]

Páll Magnússon (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er gleðilegt að hv. þm. Grétar Mar Jónsson skuli taka þátt í umræðunni. Ég vil nota tækifærið til að spyrja hv. þingmann hvort hann hafi ekkert heyrt í formanninum ágæta, hv. þm. Guðjóni A. Kristjánssyni, og hver viðbrögð hans séu við því að þingflokkur Frjálsl. skuli leggjast alfarið gegn frv. sem hv. þm. Guðjón A. Kristjánsson hafði samþykkt að hér yrði lagt fram.