Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 220. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 233  —  220. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um forsjárlausa foreldra.

Frá Árna Steinari Jóhannssyni.



     1.      Hvað eru forsjárlausir feður margir í landinu og hvað eru forsjárlausar mæður margar?
     2.      Hefur ráðherra látið gera úttekt á félagslegri stöðu forsjárlausra foreldra? Ef ekki, er slík úttekt áformuð?