Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 479. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Nr. 11/130.

Þskj. 1253  —  479. mál.


Þingsályktun

um staðfestingu samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirtalda samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2003:
     1.      Samning milli Íslands og Færeyja um stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2003 sem gengið var frá með bréfaskiptum í Reykjavík og Þórshöfn 22. maí og 4. júní 2003.
     2.      Samkomulag milli Íslands og Noregs um stjórnun veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2003 sem gert var í Ósló 26. júní 2003.

Samþykkt á Alþingi 29. mars 2004.