Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 467. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1418  —  467. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um Siglingastofnun Íslands, nr. 6/1996, með síðari breytingum.

Frá samgöngunefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Sigurberg Björnsson og Unni Sverrisdóttur frá samgönguráðuneyti og Sigurð Ás Grétarsson, Helga Jóhannesson og Ara Guðmundsson frá Siglingastofnun.
    Nefndinni bárust skriflegar umsagnir um málið frá Siglingastofnun, Vélstjórafélagi Íslands, Landhelgisgæslu Íslands, Landssambandi smábátaeigenda, Landssambandi íslenskra útvegsmanna og Sambandi íslenskra kaupskipaútgerða.
    Verkefni Siglingastofnunar hafa tekið nokkrum breytingum á undanförnum árum og er frumvarpinu ætlað að mæta þeim. Helstu efnisatriði frumvarpsins eru þau að Siglingastofnun er falið að annast framkvæmd laga um siglingavernd og birta á heimasíðu sinni alþjóðasamninga, viðauka og kóða sem gefnir eru út af Alþjóðasiglingamálastofnuninni auk þess sem settar eru skýrari reglur í lög varðandi heimildir stofnunarinnar til tekjuöflunar.
    Við umfjöllun málsins urðu töluverðar umræður í nefndinni um notkun orðsins „kóði“ og einnig um heimildina sem felst í frumvarpinu til handa Siglingastofnun að birta alþjóðasamninga, viðauka og kóða á ensku. Það varð þó niðurstaða nefndarinnar að leggja ekki til breytingar á þessu tvennu frá því sem lagt er til í frumvarpinu.
    Nefndin leggur til eftirfarandi breytingar á frumvarpinu:
     1.      Að í stað orðanna „siglinga- og hafnavernd“ í 13. tölul. b-liðar 1. gr. komi siglingavernd. Til meðferðar á þinginu nú er frumvarp til laga um siglingavernd en engin lög eru til um siglinga- og hafnavernd. Því er rétt að breyta orðalagi frumvarpsins til samræmis við það frumvarp sem nú er til meðferðar um siglingavernd.
     2.      Að við 14. tölul. b-liðar 1. gr. bætist nýr málsliður sem mæli svo fyrir að þeim sem þess óska skuli gefinn kostur á að fá sendar tilkynningar frá Siglingastofnun þegar birtir eru nýir samningar, kóðar eða viðaukar eða þeim breytt á heimasíðunni. Í umsögn um frumvarpið frá Sambandi íslenskra kaupskipaútgerða kom fram gagnrýni á að breytingar á alþjóðasamningum, viðaukum og kóðum yrðu aðeins birtar á netinu en ekki tilkynntar þeim sem helst eiga að fara eftir þeim. Nefndin telur rétt að komið verði til móts við þetta sjónarmið.
     3.      Að upptalning verði sett inn í ákvæðið varðandi sérþjónustu sem Siglingastofnun selur. Nefndin áréttar að hér er ekki um endanlega upptalningu að ræða heldur er aðeins verið að skýra nánar hvað fallið getur undir liðinn.



Prentað upp.
     4.      Þá er að lokum lögð til orðalagsbreyting á lokamálsgrein 1. gr. sem óþarft er að skýra.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með framangreindum breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.
    Kristinn H. Gunnarsson og Ásta R. Jóhannesdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Jóhann Ársælsson skrifar undir álitið með fyrirvara og áskilur sér rétt til að leggja fram og styðja breytingartillögur við málið.

Alþingi, 14. apríl 2004.



Guðmundur Hallvarðsson,


form., frsm.


Guðjón Hjörleifsson.


Arnbjörg Sveinsdóttir.



Birkir J. Jónsson.


Jóhann Ársælsson,


með fyrirvara.


Einar Már Sigurðarson.



Guðjón A. Kristjánsson.