Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 950. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Nr. 20/130.

Þskj. 1728  —  950. mál.


Þingsályktun


um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2004.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2004 sem gengið var frá með bréfaskiptum í Reykjavík og Þórshöfn 25. og 30. mars 2004.

Samþykkt á Alþingi 19. maí 2004.