131. löggjafarþing — 64. fundur, 1. feb. 2005.
Endurskoðun á sölu Símans.
44. mál
[17:54]
Forseti (Jónína Bjartmarz):
Forseta finnst rétt að taka fram að um leið og hv. þm. Jóhann Ársælsson, 2. þm. Norðvest., óskaði eftir því að talsmenn stjórnarflokkanna á sviði samgöngumála væru hér viðstaddir þá var beiðninni komið á framfæri. Það hefur ekki unnist tími til að fá nokkur viðbrögð frá þeim talsmönnum stjórnarflokkanna sem óskað var eftir.