131. löggjafarþing — 74. fundur, 15. feb. 2005.
Tilkynning.
[13:32]
Forseti (Halldór Blöndal):
Að lokinni atkvæðagreiðslu fer fram utandagskrárumræða um vöxt og viðgang þorsks í Breiðafirði. Málshefjandi er hv. þm. Sigurjón Þórðarson en hæstv. sjávarútvegsráðherra Árni M. Mathiesen verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.