Tilkynning.
Forseti (Þuríður Backman):
Borist hefur svohljóðandi bréf frá formanni þingflokks framsóknarmanna, Hjálmari Árnasyni, um mannabreytingar í nefndum:
„Þingflokkur framsóknarmanna hefur ákveðið, í samræmi við 16. gr. þingskapa, að eftirfarandi breytingar verði á skipan þingmanna flokksins í fastanefndum:
Kristinn H. Gunnarsson tekur sæti Birkis J. Jónssonar í sjávarútvegsnefnd og sæti Magnúsar Stefánssonar í umhverfisnefnd.
Jafnframt verður sú breyting að Kristinn H. Gunnarsson tekur sæti Birkis J. Jónssonar í Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA.“