Hækkun hámarksbóta almannatrygginga

Mánudaginn 21. febrúar 2005, kl. 15:29:32 (4831)


131. löggjafarþing — 77. fundur,  21. feb. 2005.

Hækkun hámarksbóta almannatrygginga.

[15:29]

heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (F):

Virðulegi forseti. Við höfum fylgst með stöðu málsins í heilbrigðisráðuneytinu og höfum verið að fara yfir stærð þess, hvað hér er um mikið mál að ræða. Ég tek undir að þörf er á að endurskoða þennan bótaflokk miðað við þá framkvæmd sem er reyndar ekki gömul. Þetta snýst einnig um fjármuni og við erum að fara yfir þann þátt málsins. Ég vil ekki fara nánar út í það á þessu stigi en við erum að vinna í málinu í ráðuneytinu á þessum vikum.