GATS-samningurinn

Þriðjudaginn 22. febrúar 2005, kl. 18:29:53 (4951)


131. löggjafarþing — 78. fundur,  22. feb. 2005.

GATS-samningurinn.

63. mál
[18:29]

Flm. (Ögmundur Jónasson) (Vg) (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Ég á án efa eftir að fá mörg tækifæri til að ræða þessa tilskipun. Ég kveð mér fyrst og fremst hljóðs til að leggja áherslu á að þessu máli verði hraðað, því verði vísað að lokinni umræðu til utanríkismálanefndar, ég tel það vera eðlilegt, en ég mun við síðari tækifæri gera grein fyrir sjónarmiðum og afstöðu til þessa máls.