Tilkynning um dagskrá

Miðvikudaginn 23. febrúar 2005, kl. 12:01:15 (4956)


131. löggjafarþing — 79. fundur,  23. feb. 2005.

Tilkynning um dagskrá.

[12:01]

Forseti (Þuríður Backman):

Klukkan 3.30 fer fram umræða utan dagskrár um þróun íbúðaverðs. Málshefjandi er hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson. Hæstv. félagsmálaráðherra verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.