Uppboðsmarkaðir sjávarafla

Föstudaginn 01. apríl 2005, kl. 16:40:15 (6467)


131. löggjafarþing — 101. fundur,  1. apr. 2005.

Uppboðsmarkaðir sjávarafla.

677. mál
[16:40]

sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Nú kveður við aðeins annan tón hjá hv. þingmanni. Nú eru skilgreiningarnar of þröngar, áður vantaði inn í. Ég varð ekki var við það við gerð frumvarpsins þegar við ráðfærðum okkur við þá sem að þessum málum starfa að þeir teldu að þetta væri til vandræða. En að sjálfsögðu er þetta eins og annað til skoðunar í nefndinni og ef menn sjá á þessu einhverja hnökra eða eitthvað sem gæti betur farið er sjálfsagt að það verði skoðað og metið áður en við ljúkum afgreiðslu málsins.

Ég held hins vegar að best sé að láta þá umræðu bíða starfs nefndarinnar og 2. umr. á hv. Alþingi.