Endurgreiðslur gjalda íslensks skipaiðnaðar

Miðvikudaginn 13. apríl 2005, kl. 14:24:16 (7297)


131. löggjafarþing — 109. fundur,  13. apr. 2005.

Endurgreiðslur gjalda íslensk skipaiðnaðar.

710. mál
[14:24]

Drífa Hjartardóttir (S):

Hæstv. forseti. Ég vil eins og aðrir þingmenn þakka hv. þm. Guðjóni Guðmundssyni fyrir að bera fram þessa fyrirspurn á Alþingi og jafnframt þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir afskaplega jákvæð svör. Ég tek undir með þeim sem hér hafa talað. Það skiptir máli að jafna aðstöðu innlendrar skipasmíði og það skiptir líka miklu máli að þekking og reynsla í skipasmíði verði áfram hér á landi. Ég ítreka þakklæti mitt fyrir þetta.