131. löggjafarþing — 132. fundur, 11. maí 2005.
Neytendastofa og talsmaður neytenda.
592. mál
[11:10]
viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F) (um atkvæðagreiðslu):
Hæstv. forseti. Með stofnun Neytendastofu og embættis talsmanns neytenda er stigið stórt skref í þágu neytenda. Talsmaður neytenda mun standa vörð um hagsmuni og réttindi neytenda og stuðla að aukinni neytendavernd. Neytendastofa mun vinna að stefnumótun á sviði neytendamála.
Ég er stolt af því að vera sá ráðherra sem fyrstur kemur fram á hv. Alþingi með róttækar tillögur til hagsbóta fyrir neytendur.