131. löggjafarþing — 3. fundur, 5. okt. 2004.
Fjárlög 2005.
1. mál
[16:39]
heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (F) (um fundarstjórn):
Herra forseti. Ég vil nú bara halda því til haga að ég hef verið við þessa umræðu síðan klukkan hálftíu í morgun og ekkert farið úr húsi. Ég hef ekki tekið til máls enn þá. Ég hafði hugsað mér að taka til máls þegar liði á umræðuna bregðast þá við því sem til mín er beint. Ég vil bara að það komi fram.