131. löggjafarþing — 6. fundur, 11. okt. 2004.
Norsk-íslenski síldarstofninn.
[15:22]
sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (S):
Herra forseti. Það er ánægjulegt að heyra hversu mikinn áhuga hv. þm. hefur á málinu. Þess vegna tel ég rétt að endurtaka það sem ég sagði áðan að ég sé ekkert því til fyrirstöðu að hægt verði að framkvæma þær rannsóknir sem við, þ.e. sjávarútvegsráðuneytið í samráði við Hafrannsóknastofnunina, hagsmunaaðila og aðra þá sem að málinu koma teljum nauðsynlegar.