Landssíminn

Mánudaginn 11. október 2004, kl. 15:25:55 (274)


131. löggjafarþing — 6. fundur,  11. okt. 2004.

Landssíminn.

[15:25]

fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (S):

Herra forseti. Ef ég man rétt var spurningunni svarað skriflega á síðasta þingi og hefur ekkert gerst í þeim málum sem gefur mér tilefni til þess að breyta því svari á neinn hátt. Ég veit ekki betur en það sé fyllilega eðlilega að öllum málum staðið hvað þetta varðar hjá Landssímanum. Þess vegna hef ég á þessu stigi engu við fyrra svarið að bæta sem ég gat um og hef reyndar ekki haft tilefni til að kanna það mál og ekki hægt að ætlast til þess í óundirbúinni fyrirspurn að menn hafi á takteinum nákvæmar upplýsingar um þetta efni.