131. löggjafarþing — 30. fundur, 15. nóv. 2004.
Verndun Þingvallavatns og vatnasviðs þess.
295. mál
[16:08]
umhverfisráðherra (Sigríður A. Þórðardóttir) (S) (andsvar):
Það verður fátt um svör þegar stórt er spurt. Þetta er spurning sem ég hef ekki sérstaklega verið að velta fyrir mér. Það má vel vera að einhvern tíma í framtíðinni komist menn að þeirri niðurstöðu án þess að ég ætli að fara að leggja sérstakan dóm á það hér.