131. löggjafarþing — 33. fundur, 18. nóv. 2004.
Fjáraukalög 2004.
76. mál
[17:13]
Einar Oddur Kristjánsson (S) (andsvar):
Herra forseti. Þó að hv. þm. Helgi Hjörvar hafi viðurkennt að hafa farið með rangt mál, sem er þá gott hjá honum, varð honum það á í messunni að gleyma að biðjast afsökunar á því.
Hins vegar er ég á mælendaskrá á eftir og skal fara þá yfir skattamál og verðbólgumál.