131. löggjafarþing — 36. fundur, 23. nóv. 2004.
Tekjuskattur og eignarskattur.
351. mál
[20:24]
Jón Gunnarsson (Sf) (andsvar):
Herra forseti. Það kom ekki margt nýtt fram í ræðu hv. þm. Birkis J. Jónssonar. Hann fór með framsóknarrulluna sem við höfum heyrt frá því að frumvarpið var lagt fram.
Aðeins ein spurning er í huga mínum eftir ræðuna og hún er sú: Af hverju vill Framsóknarflokkurinn ekki lækka virðisaukaskatt á matvæli einn flokka á Alþingi?