Raforkulög

Föstudaginn 10. desember 2004, kl. 20:46:14 (3532)


131. löggjafarþing — 56. fundur,  10. des. 2004.

Raforkulög.

328. mál
[20:46]

iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Hér er ekki um neitt sjónarspil að ræða. Málið sem hér hefur verið sett fram er vel ígrundað og ég hef miklar væntingar um að það verði jákvætt fyrir þjóðina í heild þegar frá líður. Ég geri mér hins vegar grein fyrir því að þetta er róttæk aðgerð og tekur sinn tíma en það er mjög mikilvægt að af henni verði.

Hvað varðar eigandahlutverkið þá útiloka ég ekki að ástæða gæti verið til að gera breytingar á því þegar fram líða stundir.