Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 210. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 210  —  210. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um aflahlutdeild.

Frá Jóhanni Ársælssyni.



    Um hvaða fisktegundir gilda lagaákvæði um aflahlutdeild? Hvenær voru lög sett um hverja tegund, hvaða heildaraflamarki var þá úthlutað og hve miklu var úthlutað í hverri tegund fyrir yfirstandandi fiskveiðiár?


Skriflegt svar óskast.