Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1309, 131. löggjafarþing 676. mál: áfengislög (áfengi til iðnaðarnota og í atvinnuskyni).
Lög nr. 40 13. maí 2005.
Dómsmálaráðherra getur með reglugerð kveðið nánar á um fyrirkomulag veitingar leyfa til innflutnings, heildsölu eða framleiðslu áfengis í atvinnuskyni.
Þingskjal 1309, 131. löggjafarþing 676. mál: áfengislög (áfengi til iðnaðarnota og í atvinnuskyni).
Lög nr. 40 13. maí 2005.
Lög um breyting á áfengislögum, nr. 75 15. júní 1998, með síðari breytingum.
1. gr.
Við 5. gr. laganna bætist ný málsgrein er orðast svo:Dómsmálaráðherra getur með reglugerð kveðið nánar á um fyrirkomulag veitingar leyfa til innflutnings, heildsölu eða framleiðslu áfengis í atvinnuskyni.
2. gr.
2. málsl. 7. gr. laganna fellur brott.3. gr.
Á eftir 1. málsl. 2. mgr. 8. gr. laganna kemur nýr málsliður er orðast svo: Handhafa innflutningsleyfis er jafnframt heimilt að selja eða afhenda fyrirtækjum áfengi til iðnaðarnota.4. gr.
Á eftir 1. málsl. 2. mgr. 9. gr. laganna kemur nýr málsliður er orðast svo: Handhafa heildsöluleyfis er jafnframt heimilt að selja eða afhenda fyrirtækjum áfengi til iðnaðarnota.5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 4. maí 2005.