132. löggjafarþing — 44. fundur, 17. jan. 2006.
Kjaradómur og kjaranefnd.
417. mál
Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að fara að leggjast í miklar orðskýringar í ræðustól Alþingis. Mér fannst að málvitund mín í þessu efni væri rétt og fór þess vegna og bar mig saman við okkar ágæta íslenskufræðing, Mörð Árnason, í þessum efnum og fékk staðfestingu hans á því. En ég held að við ættum að vera í efnisumræðu um málið en ekki í orðaskaki af þessum toga.