Hjúkrunarþjónusta við aldraða

Miðvikudaginn 01. febrúar 2006, kl. 15:14:37 (4125)


132. löggjafarþing — 56. fundur,  1. feb. 2006.

Hjúkrunarþjónusta við aldraða.

423. mál
[15:14]
Hlusta

heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson) (F):

Virðulegi forseti. Hv. 4. þm. Reykv. s. hefur beint til mín fyrirspurn er varðar vistun hjóna og sambúðarfólks á öldrunarstofnunum. Samkvæmt upplýsingum sem unnar voru úr vistunarskrá aldraðra 23. janúar bíða nú 38 einstaklingar sem eiga maka inni á öldrunarstofnunum eftir vistun. Af þeim öldruðu sem nú dvelja á öldrunarstofnunum eru níu pör, þ.e. hjón eða sambúðarfólk, sem ekki eru vistuð á sömu stofnun.

Einnig er spurt hve margir hafi verið vistaðir þannig á undanförnum fimm árum. Það eru 16 pör samkvæmt upplýsingum úr vistunarskrá aldraðra frá 1. janúar 2001.

Hv. þingmaður spyr hvort mér þyki boðlegt að aðskilja öldruð hjón eða sambýlisfólk á þennan hátt. Ef ég svara þeirri spurningu beint finnst mér auðvitað slæmt að þetta skuli eiga sér stað, enda er það svo að þegar einstaklingar í sambúð eða hjónabandi eru báðir í þörf fyrir vistun á öldrunarstofnunum er reynt að sjá til þess að þeir geti vistast saman. Er það einlægur vilji þeirra sem koma að vistunarmálum aldraðra. Oftast tekst þetta og samkvæmt upplýsingum sem fram komu í svari mínu við fyrirspurn á síðasta löggjafarþingi voru í lok desember 2004 samtals 89 hjón eða pör vistuð saman á öldrunarstofnunum í dvalar- og hjúkrunarrýmum.

Eins og dæmin sanna reynist ekki alltaf unnt að haga vistun hjóna eða sambýlisfólks á þennan veg þótt vilji sé fyrir hendi. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég aflaði mér eru þó tilvik þar sem hjón eða sambýlisfólk hafa vistast hvort á sinni stofnuninni eða annað þeirra bíður eftir vistun nær alfarið bundin við höfuðborgarsvæðið. Skýringin á þessu er væntanlega helst sú að skortur á vistrýmum fyrir aldraða er mestur í Reykjavík og öll rými á stofnunum jafnan fullskipuð. Samkvæmt reglugerð um þjónustuhóp aldraðra og vistunarmat þeirra skulu stofnanir sjá til þess við veitingu vistrýma að þeir gangi fyrir sem lengst hafa beðið með mjög brýna eða brýna þörf og er þá miðað við vistunarmat. Ef margir bíða í mjög brýnni þörf fyrir hjúkrunarrými er stofnunum því vandi á höndum þegar sambýlisfólk eða hjón óska eftir stofnanavistun og annað þeirra er í mjög brýnni þörf fyrir slíkt úrræði en hitt ekki. Nú er það svo að langstærsti hluti vistrýma á öldrunarstofnunum er hjúkrunarrými og er í raun um sjúkrahúsþjónustu að ræða. Miðað við skipulag stofnanaþjónustu við aldraða og tilgang hjúkrunarrýma getur því orkað tvímælis þegar vista á einstakling á öldrunarstofnun ef meginástæða fyrir umsókn hans er veikindi makans.

Einnig má nefna aðstæður þar sem þörf þessara einstaklinga fyrir úrræði er mjög ólík, sérstaklega ef annað þarf vistun á sérstakri deild fyrir heilabilaða en hitt ekki eða ef annað þarf mjög mikla hjúkrun og umönnun meðan hinu nægir dvalarrými.

Virðulegi forseti. Ég hef nú reynt að skýra það hvers vegna þær aðstæður koma stundum upp að hjón og sambúðarfólk geta ekki verið samvistum á stofnunum aldraðra. Ég vil hins vegar taka fram að ég geri ekki lítið úr aðstæðum þess fólks sem fyrir því verður og ég tel slæmt að það skuli eiga sér stað.