132. löggjafarþing — 65. fundur, 13. feb. 2006.
Heyrnar-, tal- og sjónstöð.
514. mál
Virðulegi forseti. Það er á verkefnaskrá stöðvarinnar að nýta þá aðstöðu sem víða er til á landsbyggðinni og þar á meðal á Akureyri. Þar er aðstaða til heyrnarmælinga. Það er á dagskrá stofnunarinnar að nýta þá aðstöðu sem til er á landsbyggðinni til að þjóna eftir því sem mögulegt er þeim sem þurfa á slíkri þjónustu að halda um hinar dreifðu byggðir.