132. löggjafarþing — 78. fundur, 7. mars 2006.
Varamenn taka þingsæti.
Hæstv. forseti. Mér finnst það ótrúlega óviðeigandi af hv. þm. Ögmundi Jónassyni að flytja þá ræðu sem hann gerði hér nú. Það sem bíður fráfarandi félagsmálaráðherra í Íslandsbanka varðar allt annað en það sem hv. þingmaður talaði um í sinni ræðu og mér finnst það honum til minnkunar að halda þá ræðu sem hann hélt. (Gripið fram í: Þetta var mjög málefnalegt.)