Varamenn taka þingsæti.
Borist hefur svohljóðandi bréf frá 8. þm. Reykv. n., Kolbrúnu Halldórsdóttur, dags. þann 18. apríl:
„Þar sem ég get ekki af einkaástæðum sótt þingfundi næstu vikur óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að fyrsti varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmi norður, Atli Gíslason lögmaður, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.“
Atli Gíslason hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný á Alþingi.