132. löggjafarþing — 121. fundur, 3. júní 2006.
ferðasjóður íþróttafélaga.
789. mál
Frú forseti. Til að ljúka þessu langar mig að segja að við tökum það þá til sjálfstæðrar umfjöllunar síðar. Ég tek það bara upp á mína arma að semja þingsályktunartillögu í þá veru. Það tekur mig svona u.þ.b. þrjú ár að fá hana í gegn. Látum íþróttirnar ryðja brautina en tökum hinn slaginn líka þótt síðar verði.