Ríkisútvarpið

Þriðjudaginn 11. október 2005, kl. 18:34:46 (417)


132. löggjafarþing — 6. fundur,  11. okt. 2005.

Ríkisútvarpið.

8. mál
[18:34]
Hlusta

Flm. (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Ríkisútvarpið. Frumvarpið flyt ég ásamt öðrum þingmönnum í þingflokki Vinstri hreyfingarinnar – grænu framboði, hv. þingmönnum Jóni Bjarnasyni, Kolbrúnu Halldórsdóttur, Steingrími J. Sigfússyni og Hlyni Hallssyni. Þetta frumvarp var lagt fram á 131. löggjafarþingi á sama tíma og stjórnarfrumvarp um Ríkisútvarpið en var aldrei tekið til umræðu. Við fundum að því á þeim tíma að svo var ekki gert. Hefði þótt eðlilegt að öll þingmál, sem voru fleiri en þessi tvö sem fram komu um Ríkisútvarpið, hefðu farið til umsagnar á sama tíma þannig að umsagnaraðilar gætu vegið og metið kosti og galla.

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um Ríkisútvarpið sem hafa þann tilgang að renna styrkari stoðum undir rekstur þess og efla lýðræðislega stjórn þess með beinni þátttöku starfsmanna og kjörinna fulltrúa þjóðarinnar á Alþingi í yfirstjórn þess. Með breyttri stjórnsýslu eins og hér er lögð til kæmu einnig fleiri aðilar að stjórn Ríkisútvarpsins eins og ég mun gera grein fyrir. Þessi breytta stjórnsýsla mun hafa það í för með sér að flokkspólitísk stjórn að stofnuninni verður rofin, fulltrúar Alþingis koma að stjórninni en þeir ráða ekki í krafti meirihlutavalds sem endurspeglar ríkisstjórn eins og nú er.

Flutningsmenn telja að Ríkisútvarpið hafi miklum lýðræðislegum og menningarlegum skyldum að gegna, auk þess sem það er öryggistæki fyrir alla landsmenn. Þess vegna er nauðsynlegt að tryggja sjálfstæði Ríkisútvarpsins og að það hafi góðar tekjur svo það rísi undir skyldum sínum. Stöðugur og traustur rekstur þess er kjölfesta í lýðræðislegri umræðu í þjóðfélaginu og tryggir hlutlæga umfjöllun og þátttöku landsmanna í landsmálum. Ég held að í ljósi þess sem er að gerast á fjölmiðlamarkaði hafi margir meiri skilning á þessu en oft áður.

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á stjórnsýslu og stjórnarformi Ríkisútvarpsins sem fela í sér að dagskrárráð og framkvæmdastjórn skipi veigamikinn sess í rekstri þess. Frumvarpið byggist á núgildandi ákvæðum um hlutverk Ríkisútvarpsins en í 1. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir að skerpt verði á skyldum Ríkisútvarpsins til að sinna innlendri dagskrárgerð.

Í 3. gr. frumvarpsins er lögð til ný skipan og hlutverk framkvæmdastjórnar. Lagt er til að framkvæmdastjórn beri ábyrgð á rekstri Ríkisútvarpsins og í þeirri grein er samsetning hennar og valdsvið skilgreint. Í framkvæmdastjórn eiga samkvæmt frumvarpinu að sitja útvarpsstjóri, framkvæmdastjórar allra deilda Ríkisútvarpsins og jafnmargir fulltrúar kjörnir af starfsmönnum, einn frá hverri deild, og fulltrúi dagskrárráðs, en hann hafi málfrelsi og tillögurétt. Útvarpsstjóri er samkvæmt frumvarpinu formaður framkvæmdastjórnar og er framkvæmdastjóri fjármáladeildar varamaður hans.

Framkvæmdastjórn ber ábyrgð á almennum rekstri, mannaráðningum, samræmingu á starfi deilda og annarri stjórn Ríkisútvarpsins. Sem áður segir er lagt til að fulltrúi dagskrárráðs eigi sæti í framkvæmdastjórn með málfrelsi og tillögurétt til að styrkja tengsl innan stofnunarinnar. Flutningsmenn telja rétt að áhrif starfsmanna í stjórn stofnunarinnar verði efld til að stuðla að lýðræðislegum vinnubrögðum, fagmennsku og samábyrgð.

Í 4. gr. er gerð tillaga um að útvarpsstjóri verði skipaður af ráðherra en samkvæmt tillögu dagskrárráðs. Verði frumvarpið að lögum verður tillaga dagskrárráðs bindandi en þannig er lýðræðisleg skipun tryggð betur en nú. Hlutverk dagskrárráðs um mannaráðningar verður því aðeins að gera tillögu um útvarpsstjóra. Að öðru leyti yrðu mannaráðningar í höndum framkvæmdastjórnar, eða ábyrgðin hvíldi þar. Útvarpsstjórinn annast að forminu til mannaráðningar, en að sjálfsögðu yrði það í reynd þannig að einstaka deildir sæju um slíkt.

Samkvæmt frumvarpinu tekur dagskrárráð yfir flest störf útvarpsráðs. Lagt er til að ráðið verði skipað fulltrúum þingflokkanna, sveitarfélaga, Neytendasamtakanna og Bandalags íslenskra listamanna, auk þess sem útvarpsstjóri, framkvæmdastjórar hljóðvarps og sjónvarps og fulltrúi starfsmanna eigi sæti í ráðinu. Dagskrárráð verði ekki umsagnaraðili um mannaráðningar eða skipan mála innan stofnunarinnar eins og útvarpsráð er samkvæmt gildandi lögum, ef frá er talin skipun útvarpsstjóra. Höfuðhlutverk þess verði að fjalla um útsenda dagskrá og er brýnt að þannig verði um hnútana búið að gagnrýni og fyrirspurnir fái skriflega afgreiðslu frá stofnuninni. Ráðið á að endurspegla ólík sjónarmið í þjóðfélaginu en ekki valdahlutföll, auk þess sem aðild starfsmanna stuðlar að tengslum við innra starf stofnunarinnar. Við skipun í ráðið skal þess gætt að bæði byggðasjónarmið og kynjasjónarmið séu höfð til hliðsjónar.

Ákvæði gildandi laga um framkvæmdastjórn Ríkisútvarpsins í 5. mgr. 9. gr. fellur brott með vísan til 3. gr. frumvarpsins. Þá er einnig gerð tillaga um breytingu á 6. mgr. 9. gr. laganna sem fjallar um mannaráðningar að teknu tilliti til efnisákvæða frumvarpsins í samræmi við það sem hér hefur verið rakið.

Þá er í frumvarpinu lagt til að sérstök lög verði sett um afnotagjöld Ríkisútvarpsins þar sem kveðið verði nánar á um gjaldið, stofn þess og innheimtu. Hingað til hafa gjöldin alltaf verið miðuð við skráð viðtæki með þeirri undantekningu að ekki er innheimt nema eitt gjald á hverju heimili þar sem viðtæki er skráð.

Hins vegar er lögð til sú grundvallarbreyting frá gildandi lögum að stofn afnotagjalds verði íbúðir og atvinnuhúsnæði eftir því sem við á. Með þessu er afnotagjaldinu fundinn nýr farvegur sem tryggir jafnræði milli notenda og Ríkisútvarpinu eðlilegar tekjur af afnotagjaldi. Því er lagt til að gjaldið verði framvegis miðað við fjölda íbúða í landinu og atvinnuhúsnæði eftir því sem við á. Því er slegið föstu að hverri íbúð fylgi réttur til að nýta þá þjónustu sem Ríkisútvarpið veitir landsmönnum. Fyrir þann rétt sé síðan greitt afnotagjald eftir nánari reglum sem settar verða í sérlögum.

Ég mælist til þess að frumvarpinu verði að lokinni umræðu vísað til umfjöllunar í menntamálanefnd.