Ríkisútvarpið

Þriðjudaginn 11. október 2005, kl. 18:55:24 (419)


132. löggjafarþing — 6. fundur,  11. okt. 2005.

Ríkisútvarpið.

8. mál
[18:55]
Hlusta

Flm. (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að hafa mörg orð. Ég vil þakka jákvæða og uppbyggilega umræðu af hálfu hv. þm. Marðar Árnasonar. Ég vona að málefni Ríkisútvarpsins fái þá umræðu sem þessari merku stofnun ber. Ef hún yrði í þessum anda þá væri vel.