Tilkynning um dagskrá

Mánudaginn 07. nóvember 2005, kl. 15:02:37 (1077)


132. löggjafarþing — 16. fundur,  7. nóv. 2005.

Tilkynning um dagskrá.

[15:02]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Um kl. 3.30 fer fram umræða utan dagskrár um breytta skipan lögreglumála. Málshefjandi er hv. þm. Jón Bjarnason. Hæstv. dómsmálaráðherra Björn Bjarnason verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.