Dýravernd

Mánudaginn 21. nóvember 2005, kl. 15:50:33 (1938)


132. löggjafarþing — 26. fundur,  21. nóv. 2005.

Dýravernd.

312. mál
[15:50]
Hlusta

Ásta R. Jóhannesdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta svar og vil spyrja hvort hún telji ekki ástæðu til að nefndin kalli eftir slíkum upplýsingum í meðferð málsins þannig að við vitum þó, ef við ætlum að banna snyrtivörur sem hafa verið þróaðar á þennan hátt, frammi fyrir hverju við stöndum.