Tekjustofnar sveitarfélaga

Þriðjudaginn 29. nóvember 2005, kl. 18:29:06 (2509)


132. löggjafarþing — 32. fundur,  29. nóv. 2005.

Tekjustofnar sveitarfélaga.

364. mál
[18:29]
Hlusta

Adolf H. Berndsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Varðandi fyrirspurn hv. þm. Kristjáns Möllers hef ég þær tölur ekki á hraðbergi en á Skagaströnd er væntanlega um að ræða heilsugæslustöð, það er það eina sem ég man eftir í augnablikinu og þar er ekki um stórar tölur að ræða. Það er það sem ég hef um málið að segja á þessu stigi.