132. löggjafarþing — 36. fundur, 7. des. 2005.
Viðskipti með aflaheimildir.
396. mál
Hæstv. forseti. Ég hef vissar efasemdir um að verið sé að beina skýrslunni til rétts aðila. Ég hef það svolítið á tilfinningunni að hv. þm. Jóhann Ársælsson sé að elta mig á milli ráðuneyta með málið, en ég er tilbúinn til að reyna að svara þessu ef ég fæ til þess samstarf stofnana sjávarútvegsráðuneytisins sem ég veit að geta gert vel í þessum efnum. Ég segi þess vegna já.