Olíugjald og kílómetragjald o.fl.

Fimmtudaginn 08. desember 2005, kl. 16:32:17 (2963)


132. löggjafarþing — 39. fundur,  8. des. 2005.

Olíugjald og kílómetragjald o.fl.

327. mál
[16:32]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Mér finnst það ekki vera minni háttar vankantur að hægt sé að fylgjast með ferðum einstaklinga, hvert þeir fara í sínum tíma. Mér finnst það vera stórmál.

Hins vegar ítreka ég það að ég tel að við séum sammála í grundvallaratriðum, ég og hv. þm. Össur Skarphéðinsson. Við viljum báðir sporna gegn því að eftirlitssamfélagið gerist of ágengt við borgarana en ég tel mjög mikilvægt að menn haldi þessari umræðu áfram, hún er flókin eins og ég sagði áðan, en hún er mjög mikilvæg.