Fjarskiptasjóður

Föstudaginn 09. desember 2005, kl. 16:04:16 (3084)


132. löggjafarþing — 40. fundur,  9. des. 2005.

Fjarskiptasjóður.

191. mál
[16:04]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka svar hv. þingmanns og tel að m.a. þessi orð hans ættu að nægja til þess að menn hafi skilning á afgreiðslu þessa máls og því atriði sem ég vék að. Samkvæmt þessu ætti mönnum að bera skylda til þess með fjarskiptasjóðnum að tryggja að slíkt samband haldist hér á landi.