Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 327. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 576 — 327. mál.
um breyting á lögum nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald o.fl., með síðari breytingum.
a. Orðin „í landbúnaði“ í 4. tölul. 1. mgr. falla brott.
b. 6. tölul. 1. mgr. orðast svo: til nota á ökutæki sem ætluð eru til sérstakra nota og eru með varanlegum áföstum búnaði til þeirra nota og brenna að meginhluta til dísilolíu í kyrrstöðu, t.d. kranabifreiðar, vörubifreiðar með krana yfir 25 tonnmetrum, borkranabifreiðar, steypuhræribifreiðar, götuhreinsibifreiðar, holræsabifreiðar, borholumælingabifreiðar og úðunarbifreiðar.
c. 7. tölul. 1. mgr. orðast svo: til nota á beltabifreiðar og námuökutæki sem eingöngu eru notuð utan vega eða á lokuðum vinnusvæðum.
d. 3. mgr. orðast svo:
Óheimilt er að nota litaða olíu á skráningarskyld ökutæki, sbr. 63. gr. umferðarlaga, nr. 50/1987, önnur en dráttarvélar skv. 4. tölul. 1. mgr. og ökutæki skv. 6. og 7. tölul. 1. mgr.
e. Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein sem orðast svo:
Eigendum ökutækja skv. 6. tölul. 1. mgr. er heimilt að skrá umrædd ökutæki hjá Umferðarstofu sem ökutæki til sérstakra nota og öðlast þar með rétt á gjaldfrjálsri litaðri olíu samhliða því að þeir greiði sérstakt kílómetragjald skv. 6. mgr. 13. gr. Ökutæki skv. 7. tölul. 1. mgr. og ökutæki sem skráð hafa verið til sérstakra nota skal auðkenna með sérstökum hætti í ökutækjaskrá.
f. 4. mgr. orðast svo:
Fjármálaráðherra er heimilt að kveða á um skilyrði fyrir undanþágu í reglugerð, þ.m.t. hvaða ökutæki falla undir 6. og 7. tölul. 1. mgr. og um fyrirkomulag skráningar ökutækja skv. 6. og 7. tölul. 1. mgr.
a. Á eftir orðinu „endurgreiðslu“ í 3. mgr. kemur: skv. 1. mgr.
b. Við 3. mgr. bætist nýr málsliður er orðast svo: Beiðnir um endurgreiðslu skv. 2. mgr. skulu afgreiddar af utanríkisráðuneytinu.
a. Við 1. tölul. 1. mgr. bætist: eða af ökutækjum skv. 7. tölul. 1. mgr. 4. gr.
b. Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein er orðast svo:
Greiða skal sérstakt kílómetragjald af eftirtöldum ökutækjum:
1. bifreiðum sem skráðar eru hér á landi, eru 5.000 kg eða meira að leyfðri heildarþyngd og skráðar eru í ökutækjaskrá sem ökutæki til sérstakra nota skv. 6. tölul. 1. mgr. 4. gr.,
2. eftirvögnum sem skráðir eru hér á landi, eru 5.000 kg eða meira að leyfðri heildarþyngd og dregnir eru af dráttarvélum. Skrá ber umrædda eftirvagna sem dregnir eru af dráttarvélum hjá Umferðarstofu. Undanþegnir gjaldskyldu eru eftirvagnar sem taldir eru upp í 3. málsl. 1. mgr. 63. gr. umferðarlaga, nr. 50/1987, með síðari breytingum.
c. Á eftir orðinu „kílómetragjalds“ í 2., 6. og 8. mgr. kemur: og sérstaks kílómetragjalds.
d. 5. mgr. orðast svo:
Sérstakt kílómetragjald af gjaldskyldum bifreiðum skv. 2. mgr. skal vera sem hér segir:
e.
Á eftir orðunum „skv. 3. tölul. 1. mgr.“ í 9. mgr. kemur: og sérstakt kílómetragjald skv. 6. mgr.
f. Við fyrirsögn greinarinnar bætist: og sérstakt kílómetragjald.
a. Á eftir 1. málsl. 2. mgr. kemur nýr málsliður sem orðast svo: Sama á við um sérstakt kílómetragjald.
b. Í stað orðsins „þungaskatt“ í 3. mgr. kemur: kílómetragjald og sérstakt kílómetragjald.
a. Í stað tilvísunarinnar „12. og 17. gr.“ í 2. mgr. kemur: 12., 14. og 17. gr.
b. 6. mgr. fellur brott.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 576 — 327. mál.
Frumvarp til laga
um breyting á lögum nr. 87/2004, um olíugjald og kílómetragjald o.fl., með síðari breytingum.
(Eftir 2. umr., 8. des.)
1. gr.
a. Orðin „í landbúnaði“ í 4. tölul. 1. mgr. falla brott.
b. 6. tölul. 1. mgr. orðast svo: til nota á ökutæki sem ætluð eru til sérstakra nota og eru með varanlegum áföstum búnaði til þeirra nota og brenna að meginhluta til dísilolíu í kyrrstöðu, t.d. kranabifreiðar, vörubifreiðar með krana yfir 25 tonnmetrum, borkranabifreiðar, steypuhræribifreiðar, götuhreinsibifreiðar, holræsabifreiðar, borholumælingabifreiðar og úðunarbifreiðar.
c. 7. tölul. 1. mgr. orðast svo: til nota á beltabifreiðar og námuökutæki sem eingöngu eru notuð utan vega eða á lokuðum vinnusvæðum.
d. 3. mgr. orðast svo:
Óheimilt er að nota litaða olíu á skráningarskyld ökutæki, sbr. 63. gr. umferðarlaga, nr. 50/1987, önnur en dráttarvélar skv. 4. tölul. 1. mgr. og ökutæki skv. 6. og 7. tölul. 1. mgr.
e. Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein sem orðast svo:
Eigendum ökutækja skv. 6. tölul. 1. mgr. er heimilt að skrá umrædd ökutæki hjá Umferðarstofu sem ökutæki til sérstakra nota og öðlast þar með rétt á gjaldfrjálsri litaðri olíu samhliða því að þeir greiði sérstakt kílómetragjald skv. 6. mgr. 13. gr. Ökutæki skv. 7. tölul. 1. mgr. og ökutæki sem skráð hafa verið til sérstakra nota skal auðkenna með sérstökum hætti í ökutækjaskrá.
f. 4. mgr. orðast svo:
Fjármálaráðherra er heimilt að kveða á um skilyrði fyrir undanþágu í reglugerð, þ.m.t. hvaða ökutæki falla undir 6. og 7. tölul. 1. mgr. og um fyrirkomulag skráningar ökutækja skv. 6. og 7. tölul. 1. mgr.
2. gr.
3. gr.
a. Á eftir orðinu „endurgreiðslu“ í 3. mgr. kemur: skv. 1. mgr.
b. Við 3. mgr. bætist nýr málsliður er orðast svo: Beiðnir um endurgreiðslu skv. 2. mgr. skulu afgreiddar af utanríkisráðuneytinu.
4. gr.
a. Við 1. tölul. 1. mgr. bætist: eða af ökutækjum skv. 7. tölul. 1. mgr. 4. gr.
b. Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein er orðast svo:
Greiða skal sérstakt kílómetragjald af eftirtöldum ökutækjum:
1. bifreiðum sem skráðar eru hér á landi, eru 5.000 kg eða meira að leyfðri heildarþyngd og skráðar eru í ökutækjaskrá sem ökutæki til sérstakra nota skv. 6. tölul. 1. mgr. 4. gr.,
2. eftirvögnum sem skráðir eru hér á landi, eru 5.000 kg eða meira að leyfðri heildarþyngd og dregnir eru af dráttarvélum. Skrá ber umrædda eftirvagna sem dregnir eru af dráttarvélum hjá Umferðarstofu. Undanþegnir gjaldskyldu eru eftirvagnar sem taldir eru upp í 3. málsl. 1. mgr. 63. gr. umferðarlaga, nr. 50/1987, með síðari breytingum.
c. Á eftir orðinu „kílómetragjalds“ í 2., 6. og 8. mgr. kemur: og sérstaks kílómetragjalds.
d. 5. mgr. orðast svo:
Sérstakt kílómetragjald af gjaldskyldum bifreiðum skv. 2. mgr. skal vera sem hér segir:
Leyfð heildarþyngd ökutækis, kg |
Sérstakt kílómetragjald, kr. |
Leyfð heildarþyngd ökutækis, kg |
Sérstakt kílómetragjald, kr. |
5.000–6.000 | 9,27 | 18.001–19.000 | 23,99 |
6.001–7.000 | 10,04 | 19.001–20.000 | 25,04 |
7.001–8.000 | 10,80 | 20.001–21.000 | 26,09 |
8.001–9.000 | 11,57 | 21.001–22.000 | 27,14 |
9.001–10.000 | 12,33 | 22.001–23.000 | 28,19 |
10.001–11.000 | 13,39 | 23.001–24.000 | 29,24 |
11.001–12.000 | 14,75 | 24.001–25.000 | 30,29 |
12.001–13.000 | 16,12 | 25.001–26.000 | 31,34 |
13.001–14.000 | 17,48 | 26.001–27.000 | 32,39 |
14.001–15.000 | 18,85 | 27.001–28.000 | 33,44 |
15.001–16.000 | 20,21 | 28.001–29.000 | 34,49 |
16.001–17.000 | 21,58 | 29.001–30.000 | 35,54 |
17.001–18.000 | 22,94 | 30.001–31.000 | 36,59 |
31.001 og yfir | 37,64 |
f. Við fyrirsögn greinarinnar bætist: og sérstakt kílómetragjald.
5. gr.
a. Á eftir 1. málsl. 2. mgr. kemur nýr málsliður sem orðast svo: Sama á við um sérstakt kílómetragjald.
b. Í stað orðsins „þungaskatt“ í 3. mgr. kemur: kílómetragjald og sérstakt kílómetragjald.
6. gr.
7. gr.
8. gr.
9. gr.
10. gr.
a. Í stað tilvísunarinnar „12. og 17. gr.“ í 2. mgr. kemur: 12., 14. og 17. gr.
b. 6. mgr. fellur brott.
11. gr.
12. gr.
13. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
Leyfð heildarþyngd ökutækis, kg |
Sérstakt kílómetragjald, kr. |
Leyfð heildarþyngd ökutækis, kg |
Sérstakt kílómetragjald, kr. |
5.000–6.000 | 8,45 | 18.001–19.000 | 22,31 |
6.001–7.000 | 9,14 | 19.001–20.000 | 23,32 |
7.001–8.000 | 9,84 | 20.001–21.000 | 24,33 |
8.001–9.000 | 10,54 | 21.001–22.000 | 25,34 |
9.001–10.000 | 11,23 | 22.001–23.000 | 26,35 |
10.001–11.000 | 12,22 | 23.001–24.000 | 27,36 |
11.001–12.000 | 13,52 | 24.001–25.000 | 28,37 |
12.001–13.000 | 14,82 | 25.001–26.000 | 29,38 |
13.001–14.000 | 16,11 | 26.001–27.000 | 30,39 |
14.001–15.000 | 17,41 | 27.001–28.000 | 31,40 |
15.001–16.000 | 18,71 | 28.001–29.000 | 32,41 |
16.001–17.000 | 20,00 | 29.001–30.000 | 33,42 |
17.001–18.000 | 21,30 | 30.001–31.000 | 34,43 |
31.001 og yfir | 35,44 |